Baobab, banana & jarðaberja hristingur

30 Jun 2016

Þessi hristingur er svo ljúffengur og rjómakenndur að það er draumi líkast. Hann bragðast líkt og mjólkurhristingur, en líka eins og fínasti desert.

Hristingurinn er stútfullur af vítamínum, trefjum og næringu, en bananarinir, cashew hneturnar og hafrarnir gera hann að þykkum og næringarríkum morgunmat sem heldur þér gangandi fram eftir degi og fullkomnar daginn.

Innihald:

  • 1 tsk Aduna Baobab Superfruit powder
  • 1 frosinn banani
  • 1 1/2 bolli fersk jarðaber (má nota frosin)
  • 1 bolli möndlumjólk
  • 2 matskeiðar haframjöl
  • 1/2 tsk vanillu extract/duft
  • Handfylli af cashew hnetum

 

Aðferð: 

1.    Blandið 1/2 bolla af jarðaberjum og agave eða maple sýrópi og hellið í botninn á glasi eða krukku.

2.    Blandið restinni af hráefninu vel saman í blandara og hellið varlega ofan í glasið/krukkuna. Hrærið varlega  saman við blönduna í botninum.

3.    Dreifið síðan chia fræjum, möndlum flögum ofan á og toppið með rifnu dökku súkkulaði.